Occidental Puerto Banus er frábærlega vel staðsett hótel, alveg við ströndina. Um 6 kílómetrar eru til Marbella og stutt er á aðaltorg Puerto Banus þar sem finna má verslanir og veitingastaði svo langt sem augað eygir.
Hótelið hefur nýlega verið uppgert og er hluti af vinsælu Barceló keðjunni.
Á hótelinu er 294 herbergi sem eru björt og rúmgóð. Herbergin eru innréttuð í mínimalískum og hlýjum stíl, öll búin mini-bar, loftkælingu, síma, sjónvarpi, öryggishólfi og svölum eða verönd. Á baðherbergi er sturta, hárþurrka og snyrtivörur.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður en þar má einnig finna A la carte veitingastað, Arrozante, sem sérhæfir sig í ýmsum hrísgrjónaréttum. Að auki er ítalskur veitingastaður, Dolce Vita sem framreiðir ítalska rétti ásamt réttum í anda Miðjarðarhafsins. Sundlaugarbarinn Breeze býður svo upp á heilsusamlegt og fágað snarl, ásamt úrvali drykkja.
Ókeypis heilsurækt er í boði fyrir hótelgesti.
Garðurinn er gróðursæll og fallegur en þar má finna tvær sundlaugar, þar af eina barnalaug. Sólbekkir standa gestum hótelsins til boða.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.