Occidental Torremolinos Playa
Hótellýsing

Occidental Torremolinos Playa er frábærlega vel staðsett hótel, alveg við ströndina á Los Álamos svæðinu í Torremolinos. Miðbær Torremolinos er í göngufæri þar sem finna má fjöldann allan af verslunum, veitingastöðum og börum. Þetta hótel býður upp á allt innifalið þjónustu.

Hótelið hefur nýlega verið uppgert og er hluti af vinsælu Barceló keðjunni. 

Á hótelinu eru 508 herbergi sem eru björt og fallega innréttuð. Þau eru öll vel búin helstu þægindum eins og loftkælingu, öryggishólhfi (gegn gjaldi), síma, mini-bar og gervihnattasjónvarpi. Hárþurrka er á baðherbergjum ásamt sturtu og snyrtivörum. Fjölskylduherbergin eru með baðkari og sturtu saman, þau eru rýmri eða um 26 fm  og hafa auk þess skrifborð og svefnsófa. Fjölskylduherbergi deluxe eru stærri eða um 32 fm og eru með aðskilin rými á milli svefnsófa og herbergis.

Hægt er að stunda heilsurækt á hótelinu í þar til gerðu rými.

Góður hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem boðið er upp á fjölbreytta matseld tengda Miðjarðarhafinu. Eldað er fyrir opnum tjöldum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, en sérstakur barnamatseðill er einnig í boði. Auk þess er A la carte veitingastaður, Arrozante, sem sérhæfir sig í ýmsum hrísgrjóna- og núðluréttum.

Tvo bari má finna á hótelinu, annars vegar lobby bar í andyri hótelsins þar sem stórt setusvæði er og hægt að njóta góðra drykkja meðan fylgst er með sjónvarpinu og hins vegar sundlaugarbar. Stór og rúmgóð verönd tilheyrir sundlaugarbarnum þar sem ýmsar skemmtanir fara einnig fram, lifandi tónlist, afþreying og sýningar hvers konar.

Tvær stórar sundlugar eru í hótelgarðinum ásamt sér sundlaugarsvæði ætlað börnum þar sem finna má rennibrautir og buslusvæði. Fín aðstaða er til sólbaða þar sem sólbekkir og sólhlífar standa hótelgestum til boða. Í garðinum er einnig leiksvæði fyrir börn.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fallegt og fjölskylduvænt hótel!