Omega Platanias Apartments
Hótellýsing

Omega Platanias er mjög huggulegt og notalegt íbúðarhótel með fallegum garði rétt fyrir ofan aðalgötuna í strandbænum Platanias. Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi þar sem er að finna skemmtilegar gönguleiðir og eru einungis um 300 metrar niður á fallega strandlengjuna sem ber með stolti bláa fánann sem einungis hreinar og snyrtilegar strendur fá í viðurkenningarskyni. Einnig er stutt niður á göngugötu Platanias þar sem er að finna góða veitingastaði, skemmtilegar verslanir og ýmsa afþreyingu og næturlíf. 

Þetta er hlýlegt og einfalt íbúðarhótel sem er skemmtilega hannað í krítverskum stíl með rúmgóðum íbúðum. Hótelið er ekki alveg nýlegt en það er mjög snyrtilegt og vel við haldið. Hér eru ýmist stúdíó íbúðir, íbúðir með einu svefnherbergi eða Maisonette íbúðir sem eru á tveimur hæðum. Allar eru íbúðirnar með svölum eða verönd, loftkælingu (8 €/dag), öryggishólfi (gegn gjaldi), síma, sjónvarpi, eldhúsaðstöðu og baðherbergi með hárþurrku. Athugið að hótelbyggingin er á þremur hæðum en engin lyfta er á hótelinu. 

Á hótelinu er fallegur garður með miklum gróðri, notalegri sundlaug, sólbekkjum og buslulaug og hentar mjög vel fyrir barnafólk. Í garðinum er snarlbar þar sem hægt er að kaupa létta málsverði og drykki. Omega er tilvalið fyrir þá sem vilja vera í rólegu og vinalegu umhverfi þar sem stutt er að sækja í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði, kaffihús og bari, skemmtilega afþreyingu og fjölbreytt mannlíf. Einnig er mjög stutt í næstu strætisvagnastöð þar sem hægt er að taka strætisvagna inn í miðbæ Chania sem er í um 12 km fjarlægð frá Platanias strandbænum. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.