Opera Plaza
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel, staðsett á móti lestarstöðinni og í fimm mínútna göngufjarlægð frá helstu einkennum borgarinnar. Hótelið er alveg við hlið Red Hotel. 

Hér eru herbergin rúmgóð og fallega innréttuð í nútímalegum stíl. Öll herbergin eru búin sjónvarpi, síma, mini-bar, loftkælingu, öryggishólfi og setusvæði. Á baðherbergi eru snyrtivörur, sturta og hárþurrka. Herbergin eru með svölum eða verönd. 

Á hótelinu er keilusalur, líkamsræktaraðstaða, heilsulind, hlaðborðsveitingastaður og bar.

Í garðinum er stór sundlaug umkringd fallegum sólbekkjum og sundlaugarbar. 

Ath. að hótelið nýtur sameiginlegrar aðstöðu með Red Hotel. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.