Palm Plaza Hotel and Spa
Hótellýsing

Fallegt og vel staðsett hótel í göngufæri við miðbæ Marrakech

Palm Plaza er staðsett á rólegu svæði í Agdal, í aðeins nokkurra mínútna göngu við miðbæinn. Hér er góð þjónusta fyrir allan aldur og mikið um að vera allan ársins hring.

Á hótelinu eru 230 herbergi, öll snyrtileg og hönnuð á bæði nútímalegan og marokkóskan hátt. Herbergin eru búin loftkælingu, mini-bar, sjónvarpi, öryggishólfi, síma og setusvæði og á baðherbergi má finna hárþurrku, sloppa, inniskó og snyrtivörur. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. 

Meðal þjónustu á hótelinu má finna tennisvöll, sundlaug með góðri sólbaðsaðstöðu, leikvöll fyrir börnin og barnaklúbb fyrir börn 4-12 ára. Hér má einnig finna þrjá veitingastaði, einn hlaðborðsveitingastað, einn asískan/marokkóskan veitingastað og snarlbar. Hér er einnig bar þar sem má finna lifandi tónlist á kvöldin og „Tea room“. 

Á hótelinu er heilsulind, þar sem er hægt að bóka sér allskonar líkamsmeðferðir eins og nudd og Hammam en einnig er líkamsræktaraðstaða og snyrtistofa. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Fallegt hótel með fjölbreytta þjónustu fyrir allan aldur!