Panorama Hotel
Hótellýsing

Panorama er gott hótel upp í hæð með einstakt útsýni yfir Chania flóann og Thodorou eyjuna. Þetta hótel býður fjölbreytta þjónustu og góða aðstöðu í fallegu umhverfi. Ekki er mikið um verslanir í næsta nágrenni við hótelið en hægt er að fá sér góðan göngutúr yfir í nærliggjandi strandbæi. Einnig er strætisvagnastöð fyrir neðan hótelið þar sem hægt er að taka strætisvagna inn í aðra strandbæi eða til Chania sem er í 6 km fjarlægð. 

Herbergin eru í látlausum eldri hótelstíl en öll eru þau með loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi (gegn gjaldi) og með svölum eða verönd. Baðherbergi eru með baðkari eða sturtu og hárþurrku. Tvíbýlin eru í aðalbyggingu hótelsins fyrir ofan sundlaugina þar sem aðgangur er að öllum sameiginlegum svæðum. Rúmgóð fjölskylduherbergin eru með gott útsýni út á sjóinn og eru staðsett fyrir neðan aðalbygginguna en þau eru einnig með verönd þar sem hægt er að ganga beint út á sér garðsvæði. Executive superior herbergin eru í sér álmu sem er einungis fyrir 16 ára og eldri og eru þau öll með svölum og sjávarsýn. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og stórt og fallega innréttað setusvæði með bar er þar fyrir innan. Sundlaugargarðurinn er stór og fallegur með stórkostlegu útsýni en þar er stór sundlaug og barnalaug sem eru aðskildar með göngubrú. Sólbaðsaðstaðan er vel búin sólbekkjum, sólhlífum og boðið er upp á ókeypis útlán á handklæðum við sundlaugina. Þá er hér sundlaugarbarinn Almyra sem er tilvalinn til að njóta snarls á daginn við sundlaugina og drykkja fyrir kvöldverð og Panoramic bar sem er tilvalinn til að njóta sólsetursins á kvöldin. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og einnig heilsulind með saunu en þar er hægt að fara í fjölbreyttar snyrti- og heilsumeðferðir. Á hótelinu er einnig krakkaklúbbur, leikvöllur og leikherbergi fyrir börnin og hægt er að stunda ýmislega afþreyingu svo sem borðtennis, billjard og tennis.

Skammt frá hótelinu er göngubrú yfir veginn fyrir neðan yfir á litla en notalega strönd og þar er hótelið með strandbarinn Nissi Beach Bar. Við vekjum athygli á því að snarl og drykkir á strandbarnum eru ekki innifaldir í allt innifalið þjónustu. Aðalveitingastaður hótelsins, Symposium, býður upp á hlaðborðsmat og a la carte matseðil. Þar er hægt að njóta yndislegs útsýni yfir Chania flóann á meðan snætt er. Einnig er hægt að fá matseðil fyrir þá sem þurfa sérstakt mataræði, en óska þarf sérstaklega eftir því. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.