Einfalt hótel nálægt ströndinni
Hér er um að ræða einfalt hótel, staðsett í um 15 mínútna göngufæri frá miðbænum í Torramolinos. Í kringum hótelið og með fram strandlengjunni er þó að finna ýmsa veitingastaði, verslanir og bari.
Á þessu hóteli er aðeins hægt að velja um allt innifalið þjónustu en hún inniheldur morgunverð, hádegis- og kvöldverð ásamt innlendum drykkjum.
Hér eru 176 herbergi á 10 hæðum hótelsins, öll með svölum. Öll herbergin eru með loftkælingu, sjónvarpi og öryggishólfi (gegn gjaldi). Á baðherbergi er hárþurrka. Herbergin eru innréttuð í einföldum gömlum spænskum stíl.
Á hótelinu má finna hlaðborðsveitingastað og bar. Í garðinum er sundlaugarbar, sundlaug og barnalaug, nuddpottur, sólbekkir og sólhlífar. Þá er hér einnig að finna leiksvæði, billjardborð, borðtennisborð og leikherbergi (e. game room). Hér er skemmtun á daginn og kvöldin fyrir alla aldurshópa.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.