Parc Hotel Miramonti
Hótellýsing

Parc Hotel Miramonti er staðsett í Val Gardena dalnum, á milli þorpanna Siusi og Fiè allo Sciliar, við rætur Alpe di Siusi svæðisins. Hótelið er fallegt og nýtískulegt með fjölskylduvænu andrúmslofti. Almenningsrúta stoppar 150 m frá hótelinu sem gengur á skíðasvæðið í Alpe di Siusi, en þangað eru um 3,5 km.  

Á hótelinu er heilsulind með innilaug og gufubaði, hvíldaraðstöðu ásamt nuddpotti. Hægt er að fá nudd og ýmsar aðrar meðferðir í heilsulindinni gegn aukagjaldi.  

Á hótelinu er veitingastaður sem bíður uppá ríkulegt morgunverðarhlaðborð og 4ja rétta kvöldverðarmatseðil ásamt salatbar. Einu sinni í viku býður hótelið uppá Gala kvöldverð.  

Herbergin eru innréttuð í fallegum og notalegum stíl. Þau eru búin öllum helstu þægindum eins og sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, síma og hárþurrku á baðherbergi.  

Nálægar skíðalyftur: 
- Seis - Seiseralm-skíðalyftan 2,6 km
- Marinzenlift 4,5 km

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.


Falleg hótel við Alpe di Siusi skíðasvæðið