Park Inn Alexanderplatz Berlin
Hótellýsing

Hótelið er í Radisson keðjunni sem margir þekkja og er afar vel staðsett í miðborg Berlínar, alveg við Alexanderplatz torgið. Héðan er stutt í verslanir, lestarstöð og mörg helstu einkenni borgarinnar. 

Hótelið er með yfir 1000 herbergi og stendur á 37 hæðum og er því annað hæsta hótelið í Þýskalandi og það hæsta í Berlín. Hér er móttakan opin allan sólarhringinn.

Herbergin eru vel búin helstu þægindum og eru um 19 fm. Öll eru búin sjónvarpi, öryggishólfi, síma, skrifborði og á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta, snyrtivörur og hárblásari. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu gegn gjaldi.

Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, lítil heilsulind, veitingastaður og bar þar sem spilið er lifandi tónlist um helgar. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.