Parque Santiago III-IV
Hótellýsing

Hér er um að ræða ákaflega líflega íbúðaþyrpingu, staðsett í hjarta Amerísku strandarinnar. Hér er fjölbreytt þjónusta í boði og er þetta góður og vinsæll valkostur fyrir fjölskyldur. Undir hótelinu er verslunarmiðstöð.

Hér eru ýmsar íbúðartegundir í boði og þær eru ekki allar innréttaðar eins. Eins eru sumar á tveimur hæðum. Hér er hægt að bóka stúdíó íbúðir og íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Allar eru vel búnar með eldhúsaðstöðu, svölum eða verönd, kaffivél og sjónvarpi. Þá er hér einnig öryggishólf (gegn gjaldi) og sími. Hægt er að óska eftir barnastól. Hægt er að fá leigðan hárblásara í móttöku gegn gjaldi.

Hér er mikið úrval veitingastaða og nokkrir barir. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða, heilsulind, þvottaaðstaða (gegn gjaldi), barnaklúbbur og leikvöllur. 

Við hótelið eru tveir stórir sundlaugargarðar, við hvora byggingu. Allar sundlaugar henta öllum aldri og eru einnig barnalaugar og grynnri laugar á svæðinu, sem henta betur börnum. Þá eru hér einnig sundlaugarbarir, sólbekkir og sólhlífar. Einnig er ákaflega skemmtilegt vatnaleiksvæði í garðinum við byggingu III (fyrir börn 12 ára og yngri). Hótelið er við strönd og því er hægt að ganga úr garðinum og beint á ströndina.

Þar sem um stórt hótel er að ræða er nokkuð um tröppur og langa ganga og því ekki hægt að mæla með þessum gististað fyrir fólk sem á erfitt með gang.

ATH. Framkvæmdir munu standa yfir í Blokk W hjá Parque Santiago IV frá 2. september 2024 - 2. febrúar 2025. Talið er að ónæði af framkvæmdum verði í lágmarki. Á meðan þessum framkvæmdum stendur yfir verða ákveðin svæði lokuð til að trufla ekki gesti hótelsins. 

ATH. Framkvæmdir munu standa yfir í Blokk B og inngangi hjá Parque Santiago III frá 15. september - 15. desember 2024. Talið er að lítilsháttar ónæði af framkvæmdum geti orðið fyrsta mánuðinn en verði svo í lágmarki eftir það.

ATH. Framkvæmdir munu standa yfir í Blokk Fuerteventura hjá Parque Santiago III frá 20. apríl 2025 - 1. ágúst 2025. Talið er að ónæði af framkvæmdum geti orðið fyrsta mánuðinn en verði svo í lágmarki eftir það.

Í öllum tilfellum eru framkvæmdirnar í flestum tilfellum frá kl. 09:00-17:00, alla virka daga, einstaka laugardaga.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega. Farþegar Heimsferða dvelja ýmist í byggingu III eða IV en vert er að nefna að ef ekki er laust í byggingu III & IV geta farþegar okkar í einstaka tilfellum verið bókaðir í aðrar byggingar hótelsins.

ATH. Farþegar mega aðeins nota aðstöðuna sem fylgir þeirri byggingu sem þeir eru bókaðir í. Nánari upplýsingar og beiðnir um annað þurfa að fara í gegnum hótelið.