Pestana Carlton
Hótellýsing

Hótel við sjóinn !

Fallegur gistivalkostur sem er staðsettur miðsvæðis í Funchal og eru 4 veitingastaðir og 2 barir á hótelinu. Á hótelinu er útisundlaug með góðri sólbaðsverönd með sólbekkjum. Einnig má finna hlaðborðsveitingastað sem býður uppá Miðjarðarhafsrétti. Önnur af tveimur saltvatnssundlaugum hótelsins er með stiga sem gengur niður að sjónum. 
Móttakan er opin allan sólarhringinn en þar er m.a. upplýsingaborð sem veitir ýmsa þjónustu. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða. 

Herbergin eru innréttuð í fallegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi og síma og á baðherbergi má finna hárþurrku. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Hótel staðsett miðsvæðis í Funchal!