Pestana Grand
Hótellýsing

Hótel með útsýni!

Pestana Grand er staðsett við sjávarsíðuna en það er umlukið suðrænum garði og býður upp á stærstu saltvatnssundlaugina á eyjunni Madeira. 

Hótelið býður upp á fínan veitingastað og aðgang að göngusvæðinu á strandlengju Funchal. 

Dvalarstaðurinn er staðsettur á klettinum Ponta da Cruz, með útsýni yfir háa sjávarkletta Cabo Girão. Bjartar innréttingarnar eru með stóra glugga sem hannaðir eru til þess að hleypa inn nægri 

náttúrulegri birtu. Pestana Grand Ocean Resort Hotel býður upp á fullbúna heilsulind með eimböðum, gufuböðum og heitum pottum. Gestir geta æft í líkamsræktarstöðinni, farið í afslappandi nudd 
eða synt í innilauginni. 

Herbergi Pestana Grand eru með sérsvölum. Öll eru loftkæld of búin en-suite-baðherbergi með baðkari. 

Á hótelinu er úrval af veitingastöðum, þar á meðal er boðið upp á rétti frá Marokkó, Ítalíu og Portúgal. Gestir geta fengið sér drykk á píanóbarnum eða notið sín í setustofunni.