Pierre & Vacances Benalmadena
Hótellýsing

Pierre & Vacanesc Benalmadena Principe er vel staðsett hótel í hjarta Benalmádena, um 300 m frá ströndinni. Snekkjubátahöfnin, Puerto Marina er í um 1 km fjarlægð, en þar má finna fjöldann allan af veitingastöðum, börum og verslunum.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn, að undanskildu milli 13:00 – 13:30 á daginn og 20:30 – 21:00 á kvöldin.

Íbúðirnar eru 50m² að stærð með einu svefnherbergi. Þær eru einfaldar, stílhreinar og rúma allt að fjóra gesti. Allar eru þær með loftkælingu, öryggishólfi (gegn gjaldi), sjónvarpi, te- og kaffiaðstöðu, brauðrist, uppþvottavél, fullbúnu eldhúsi og setuvæði auk þess sem svalir eða verönd fylgja öllum íbúðum. Hárþurrka er á baðherbergjum og baðkar með sturtu. Hægt er að panta þrif gegn gjaldi, en eldhúsið er undanskilið aðkeyptum þrifum. Einnig selur hótelið svokallaðan þrifpakka með hreinsiefnum.

Í grennd við hótelið má finna ýmsa afþreyingu, t.d. barnaleikvöll, minigolf, spilavíti, tennisvöll og skemmtigarð.

Ath. það er ekki veitingastaður á hótelinu en það er bar og snakkbar. Einnig eru sjálfsalar sem selja drykki og snarl.

Stór sundlaug er við hótelið ásamt barnalaug. Sólbekkir og sólhlífar eru í boði en það er háð framboði hverju sinni. Einnig er verönd með stólum og sólhlífum þar sem hægt er að slaka á og njóta sólarinnar.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Góð staðsetning!