Hér er um að ræða vel staðsett hótel, í hjarta Porto og í innan við fimm mínútna göngufjarlægð frá helstu kennileitum borgarinnar. Nafn hótelsins er dregið af því að Hotel Teatro stendur nú á sama stað og Baquet Theatre stóð fyrr á öldum.
Ribeira svæðið (árbakkasvæðið) er einungis í um 750 metra fjarlægð og Santa Catarina verslunargatan í um 300 metra fjarlægð frá þessu hóteli.
Hótelið var tekið í gegn árið 2021 og hefur því verið að fullu endurnýjað. Hótelið er á sex hæðum með 74 herbergi.
Herbergin eru nútímalega innréttuð og öll búin kaffi- og te aðstöðu, mini-bar (gegn gjaldi), loftkælingu, síma, sjónvarpi og öryggishólfi. Á baðherbergi er sturta, hárþurrka og snyrtivörur frá Ritual.
Á hótelinu er ítalskur veitingastaður og bar, en þar er hægt að versla snarl á meðan aðal veitingastaðurinn er lokaður. Hægt er að fá herbergisþjónustu gegn gjaldi á hótelinu frá kl. 7:30 – 22:30.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Mjög vel staðsett hótel sem óhætt er að mæla með