Porto Platanias Beach Luxury Selection
Hótellýsing

Porto Platanias Luxury Selection er fallega hannað 5 stjörnu hótel. Frábærlega vel staðsett á Platanias ströndinni. Hótelið er nýtískulegt og hannað í björtum litum og öll sameiginleg aðstaða til fyrirmyndar. 

Herbergin eru björt og falleg í nútímastíl og öll með loftkælingu, sjónvarpi, síma, nettengingu, minibar (þarf að panta sérstaklega og greiða fyrir), öryggishólfi og fallegu baðherbergi með sturtu. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. 

Í garðinum er að finna 1 stóra sundlaug ásamt lítilli barnalaug. Líkasmræktaraðstaða og heilsulind er einnig að finna á hótelinu. Veitingastaður hótelsins býður uppá fallegt útsýni yfir hafið/flóann en þar er boðið upp á hlaðborð með heitum og köldum réttum á morgnana og kvöldin. Í hádeginu er boðið upp á a la carte matseðil. Við hótelið er svo hægt að stunda sjóíþróttir, leigja hjól, spila padel tennis og tennis á glænýjum völlum hótelsins. 

Frábært hótel með mjög góða staðsetningu við Platanias ströndina.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.