Porto Platanias Beach Resort & Spa
Hótellýsing

Porto Platanias Beach er glæsilegt hótel staðsett alveg við ströndina og nálægt hjarta Platanias. Hótelið er með stóran sundlaugargarð með nokkrum sundlaugum og barnalaugum, góðri sólbaðsaðstöðu, barnaleiksvæði, veitingastöðum og börum, heilsulind og líkamsrækt. Einnig er hér fjölbreytt afþreying og skemmtanadagskrá í boði. 

 

Herbergin eru falleg og stílhrein og öll með svölum eða verönd, loftkælingu, öryggishólfi (gegn gjaldi), sjónvarpi, kæliskáp og síma. Á baðherbergjum er ýmist sturta eða baðkar og hárþurrka. 

 

Hótelið er með mjög fallegan sundlaugargarð og þaðan er hægt að ganga beint út á ströndina. Í garðinum eru fimm sundlaugar, barnalaugar, sólbekkir og sólhlífar, sundlaugarbarir, leiksvæði fyrir börn og barnaklúbbur fyrir börn á aldrinum 5─12 ára. Sundlaugarnar eru víðs vegar um garðinn og því má koma sér fyrir í rólegheitum eða lífi og fjöri, allt eftir því hvað hver vill. Hótelið þykir fjölskylduvænn kostur og hér er skemmtidagskrá sex daga vikunnar og einnig hægt að spila billiard, fara í pílukast og borðtennis. 

 

Á hótelinu eru fjórir veitingastaðir en aðalveitingastaðurinn er hlaðborðsstaður þar sem morgun-, hádegis- og kvölverðir eru framreiddir. Einnig er veitingastaður á þakinu þar sem sérstök „þema“ kvöld eru haldin einu sinni í viku ásamt því að hér er a la carte veitingastaður fyrir galakvöldverði. Að auki er a la carte hádegisveitingastaður við sundlaugarsvæðið og á sundlaugarbarnum má velja úr léttum réttum yfir daginn. Þá eru fimm barir víðs vegar um hótelið; í gestamóttökunni, á þakveröndinni, sundlaugarbarir í garðinum og strandbar við ströndina. 

 

Á hótelinu er að finna líkamsræktaraðstöðu og einnig fallega heilsulind en greiða þarf aukalega fyrir aðgang að henni. Í heilsulindinn er að finna upphitaða laug, nuddpotta, saunu og gufubað. Þar er einnig boðið upp á fjölbreytt úrval af snyrti- og heilsumeðferðum. Tveir nýir Padle vellir og einn tennisvöllur eru gestum hótelsins aðgengilegir og við ströndina má komast í alls konar fjölbreytt vatnasport gegn aukagjaldi. Hótelið er staðsett á afar góðum stað í Platanias, alveg við strandgötuna og þar sem er að finna fjölbreytt úrval af verslunum, veitingastöðum, börum, kaffihúsum og ýmsa afþreyingu. Frá aðalgötunni ganga strætisvagnar inn til Chania sem er í um 10 km fjarlægð frá hótelinu.

 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.