Porto Platanias Village Resort
Hótellýsing

Porto Platanias Village er fallegt íbúðarhótel sem er góður og þægilegur valkostur með fjölbreyttri þjónustu, sér í lagi fyrir fjölskyldufólk. Hótelið er vel staðsett rétt við miðbæ Platanias og nálægt ströndinni sem er í einungis 200 metra fjarlægð. Það er einnig mjög nálægt systurhótelinu Porto Platanias Beach, en gestir geta einnig nýtt sér þjónustu þar. Þetta er líflegt svæði með verslunum, góðum veitingastöðum, kaffihúsum, börum og margvíslegri afþreyingu. 

Hótelið býður góðar og stílhreinar íbúðir sem eru misjafnlega staðsettar á hótelinu og allar með svölum eða verönd. Íbúðir eru með litlu eldhúsi með ísskáp og öðrum eldhúsáhöldum, loftkælingu, síma, sjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi) og hárþurrku á baðherbergi. 

Í huggulegum garðinum er að finna stóra sundlaug og barnalaug, góða sólbaðsaðstöðu og leiksvæði fyrir börnin. Þar er einnig veitingastaður, sundlaugarbar og lítil verslun þar sem hægt er að kaupa ýmsar vörur. Jafnframt eru tveir nýir padle vellir og einn tennisvöllur sem eru gestum hótelsins aðgengilegir og einnig er hægt að spila borðtennis. Gestir á Porto Platanias Village geta nýtt sér sundlaugargarðinn og líkamsræktaraðstöðuna á Porto Platanias Beach hótelinu. Þar er einnig að finna fallega heilsulind með upphitaðri laug, saunu, gufubaði og fjölbreyttum snyrti- og heilsumeðferðum en greiða þarf aukalega fyrir aðgang að heilsulindinni. 

Þetta hótel er góður valkostur með þægilega staðsetningu í grennd við líf og fjör Platanias. Á ströndinni fyrir neðan Porto Platanias Beach hótelið er hægt að leigja sólbekki og sólhlífar og þar er jafnframt hægt að stunda mismunandi vatnaíþróttir eða fara í bátsferðir í kringum Thodorou eyjuna sem er skammt frá. Rétt við hótelið er einnig strætisvagnastöð þar sem hægt er að taka strætisvagna inn til Chania sem er í um 11 km fjarlægð.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.