Quinta Splendida Wellness & Botanical Garden
Hótellýsing

Quinta Splendida Wellness & Botanical Garden er staðsett í enduruppgerðu höfðingjasetri frá 19. öld. Lóðin sem hótelið stendur á er 30.000 m² grasagarður og býður upp á víðáttumikið útsýni yfir Atlantshafið. 

Á hótelinu erinnisundlaug og ein stærsta heilsulind Madeira, með 10 meðferðarherbergjum. 

Svíta með sjávarsýn er með aðgangi að spainu. Þessi rúmgóða og opna svíta  (85fm) er með útsýni yfir Atlantshafið, meðháum gluggum og ítölskum húsgögnum. Hún er með einkaverönd með útihúsgögnum, 42" LCD-sjónvarp, stemningarlýsingu og stýrt gardínukerfi. 

Íbúð með hliðarsjávarsýn er um 55 fm með aðskilda stofu og með eldhúsi og borðkrók. Hægt er að vera 4 fullorðnir þar. 

 

Hótelið býður upp á úrval veitingastaða Á La Perla geta gestir notið portúgalskrar sælkeramatargerðar. Á staðnum er taílenskur setustofa, kokkteilbar og veitingastaður með útsýni yfir sundlaugina sem framreiðir salöt og smoothies.

Í Grasagarðinum geta gestir slakað á í sólstólum við sundlaugina eða spilað biljarð. Heilsulindin er með finnskt gufubað og íslaug. Afþreying í nágrenninu innifelur golf, köfun og hvalaskoðun.