Radisson Blu
Hótellýsing

Hótelið er í hinni vinsælu Radisson keðju með fallegu útsýni yfir hafið. 

Á hótelinu er 252 herbergi, öll búin loftkælingu, te- og kaffiaðstöðu, öryggishólfi, sími, sjónvarp og á baðherbergi er sturta, stækkunarspegill og hárþurrka. 

Hér má finna þrjá veitingastaði, bar og strandklúbb með veitingastað. Þá er hér einnig heilsulind og líkamsræktaraðstaða, bæði gegn auka gjaldi. 

Í garðinum má finna sundlaug, sólbekki og sólhlífar og sundlaugarbar en þar er aðeins opið yfir sumarmánuðina. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.