Red Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt hótel, staðsett á móti lestarstöðinni og í fimm mínútna göngufjarlægð frá helstu einkennum borgarinnar. 

Hótelið er fallega innréttað og snyrtilegt. Herbergin eru í marrókóskum stíl í rauðum litum eins og nafn hótelsins. Öll herbergin eru búin síma, sjónvarpi, loftkælingu, mini-bar, öryggishólfi og á baðherbergi eru snyrtivörur og hárþurrka. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. Hér er hægt að panta herbergisþjónustu (e. room service) gegn auka gjaldi, allan sólarhringinn. 

Á hótelinu er keilusalur, líkamsræktaraðstaða, heilsulind, hlaðborðsveitingastaður og bar.

Í garðinum er stór sundlaug umkringd fallegum sólbekkjum og sundlaugarbar. 

Ath. að hótelið nýtur sameiginlegrar aðstöðu með Hotel Opera Plaza. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.