Riu Tikida Beach
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt og snyrtilegt hótel, staðsett aðeins á göngugötunni við ströndina í Agadir og aðeins kílómetra frá miðbænum. Þó er stutt í alla þjónustu eins og verslanir og matvörubúðir. 

Hótelið býður aðeins upp á allt innifalið þjónustu og er aðeins fyrir 16 ára og eldri. Í þessari þjónustu er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á hlaðborðsveitingastað hótelsins. Þrjú kvöld í viku eru sérstök þemakvöld í kvöldverðinum. Drykkir, áfengir og óáfengir eru í boði til miðnættis alla daga. 

Hótelið er á fjórum hæðum með 254 herbergi alls. Öll herbergin hafa nýlega verið endurnýjuð og eru öll snyrtilega og fallega uppsett. 

Öll herbergin eru rúmgóð (um 40 fm) og öll eru búin sófa, sjónvarpi, loftkælingu, öryggishólfi og litlum ísskáp. Flest herbergi eru með svölum eða verönd en einnig er hægt að bóka án svala. Hér er hægt að bóka herbergi með sundlaugar- eða sjávarsýn og ræðst það eftir hvað er laust á hótelinu hverju sinni. 

Á hótelinu eru fjórir veitingastaðir, tveir barir, heilsulind og líkamsræktaraðstaða. Þá eru hér einnig tveir tennisvellir þar sem hægt er að óska eftir kennslu. Á hótelinu er skemmtidagskrá á daginn og lifandi tónlist eða skemmtun á kvöldin. 

Í garðinum eru þrjár sundlaugar, þar af ein saltvatnslaug, sundlaugarbar og veitingastaður, sólbekkir og sólhlífar.

Gestum hótelsins býðst að nota sólbekki á ströndinni að kostnaðarlausu. Einnig er golfvöllur í 10 km fjarlægð frá hótelinu þar sem gestir hótelsins fá sérstakan afslátt og fría skutlu á milli. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.