Riu Tikida Dunas
Hótellýsing

Hér er um að ræða vel staðsett hótel, rétt hjá ströndinni. 

Hótelið býður aðeins upp á allt innifalið þjónustu. Í þessari þjónustu er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á hlaðborðsveitingastað hótelsins. Tvö kvöld í viku eru sérstök þemakvöld í kvöldverðinum. Drykkir, áfengir og óáfengir eru í boði til miðnættis alla daga. 

Öll herbergin eru staðsett í aðalbyggingu hótelsins og eru öll búin sófa, sjónvarpi, loftkælingu, öryggishólfi og litlum ísskáp og svölum eða verönd. 

Á hótelinu eru fimm barir, þar af einn karaoki bar, hlaðborðsveitingastaðir, skemmtidagskrá fyrir fullorðna, kvöldskemmtun, krakkaklúbbur, unglingaklúbbur. Þá er hér einnig leikvöllur og tennisvöllur, líkamsræktaraðstaða og sex daga vikunnar eru sérstakir tímar með þjálfurum. 

Í garðinum eru tvær sundlaugar, ein saltvatnslaug, sólbekkir og sólhlífar. Þá er einnig innisundlaug staðsett á heilsulind hótelsins og einkastrandsvæði fyrir gesti.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.