Riu Tikida Garden
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt og gott hótel sem er eingöngu ætlað 16 ára og eldri.

Herbergin eru fallega innréttuð og í nútímalegum stíl. Þau eru öll útbúin loftkælingu, öryggishólfi (gegn gjaldi), setusvæði, gervihnattasjónvarpi og svölum eða verönd. Auk þess er lítill ísskápur og ketill.

Hótelið býður aðeins upp á allt innifalið þjónustu, en finna má auk þess a la carte veitingastað, sundlaugarbar, snarlbar og veitingastað við sundlaugina.

Fjórar sundlaugar eru á hótelinu, þar á meðal upphituð innilaug yfir veturmánuðina, en í garðinum má finna sólbekki, sólhlífar og handklæði. Að auki er sólarverönd.

Hægt er að bóka alls kyns nudd og snyrtimeðferðir gegn gjaldi, sem og Sauna og tyrkneskt bað.

Hárgreiðslustofa er á á hótelinu, líkamsræktarstöð, verslun og gjafabúð. 

Ýmsa afþreyingu má finna, t.d tennis- og blakvöll. Skemmtidagskrá, bæði á daginn og kvöldin er mörgum sinnum í viku, ásamt lifandi tónlist.

Tveir 27 holu golfvellir eru stutt frá hótelinu.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma. 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.