Hér er um að ræða vel staðsett hótel alveg við ströndina í Taghazout.
Hótelið er staðsett aðeins út úr Taghazout, en um 5 km eru í miðbæ Taghazout og 15 km frá Agadir, og því tilvalið að vera með bílaleigubíl ef kosið er að vera á þessu hóteli.
Hótelið býður aðeins upp á allt innifalið þjónustu. Í þessari þjónustu er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á hlaðborðsveitingastað hótelsins. Tvö kvöld í viku eru sérstök þemakvöld í kvöldverðinum. Þjónustan er í boði allan sólarhringinn.
Herbergin eru vel búin öllum helstu þægindum og mjög rúmgóð (um 46 fm). Öll eru búin sjónvarpi, sófa í samliggjandi setustofu, loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, hitakatli, öryggishólfi og svölum eða verönd.
Á hótelinu eru fjórir veitingastaðir, þar af einn hlaðborðsveitingastaður, skemmtidagská á kvöldin fyrir fullorðna, barnaklúbbur og unglingaklúbbur. Þá er hér líkamsræktaraðstaða og daglega eru sérstakir tímar með þjálfurum.
Í garðinum eru sjö sundlaugar, sólbekkir og sólhlífar. Gestir hótelsins hafa aðgang að sólbekkjum á ströndinni þeim að kostnaðarlausu.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.