Riu Tikida Palmeraie
Hótellýsing

Hér er um að ræða fallegt og snyrtilegt hótel, staðsett aðeins út úr miðju Marrakech. 

Hótelið býður aðeins upp á allt innifalið þjónustu. Móttakan er opin allan sólarhringinn og hótelið býður upp á skutlu í miðbæinn nokkrum sinnum á dag.

Herbergin eru falleg og í nútímalegum stíl. Þau eru rúmgóð og öll eru búin loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi, litlum ísskáp og svölum eða verönd. Hægt er að bóka herbergi með eða án sófa. 

Á hótelinu eru veitingastaðir, bar, líkamsræktaraðstaða, heilsulind, sauna og innisundlaug. Einnig er hér sundlaugargarður með tveimur sundlaugum, sólbekkjum og sólhlífum og fallegu setusvæði. 

Hótelið er einnig gott fyrir fjölskyldur en það er starfræktur barnaklúbbur og á svæðinu er leikvöllur og barnalaug. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.