Roca Belmonte
Hótellýsing

Roca Belmonte er vel staðsett nálægt miðbæ Albufeira

Einfaldur og lítill gistivalkostur, en hér eru aðeins 25 íbúðir. Hótelið er í um kílómetra fjarlægð frá miðbæ Albufeira og öllum helstu sérkennum staðarins. 

Á hótelinu er lítil sundlaug með góðri sólbaðsverönd en þar eru sólbekkir og sólhlífar og lítill bar. Þá er hér einnig leiksvæði fyrir börn. 

Hér eru ýmist íbúðir með einu svefnherbergi eða tveimur. Allar eru þær einfaldlega innréttaðar, með eldhúskrók, örbylgjuofni og ristavél. Þá er hér einnig loftkæling, sjónvarp og öryggishólf. Allar íbúðirnar eru með svölum. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einfalt og hagstætt hótel