Rofaida Apart Hotel
Hótellýsing

Hér er um að ræða lítið íbúðarhótel staðsett í Founty hverfinu, Agadir. Héðan tekur um 10 mínútur að ganga niður að ströndinni og ótal veitingastaðir og verslanir eru í stuttu göngufæri. Um 25 mínútna ganga er að gamla bænum og smábátahöfninni. 

Superior íbúðirnar eru einfaldar, innréttaðar í hefðbundnum marakóskum stíl. Allar eru með eldhúskrók þar sem er ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, eldunaraðstaða og helsta leirtau. Þá er hér loftkæling, öryggishólf, sjónvarp og ýmist svalir eða verönd. 

Á hótelinu eru tvær litlar sundlaugar, þar af ein barnalaug og í garðinum er bekkir og sólhlífar. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Einfalt hótel á hagstæðu verði