Santa Eulalia Suite Hotel and Spa
Hótellýsing

 

Santa Eulalia Hotel & Spa er í aðeins 500 metra fjarlægð frá Oura- og Santa Eulalia ströndunum. Hótelið er umkringt fallegum görðum og er í aðeins 2,5 km fjarlægð frá miðbæ Albufeira. Balaia golfvöllurinn er í 3 km fjarlægð.

 

Öll herbergin á hótelinu eru með svölum og öll eru með loftkælingu. Þá er sjónvarp og suðuketill til að útbúa kaffi og te. Baðherbergin eru með hárþurrku og snyrtivörum. Ókeypis þráðlaus nettenging (wifi) er til staðar hvarvetna á gististaðnum.

 

Hótelgarðurinn er með sundlaug og sólbekkjum en innanhúss er einnig innilaug og líkamsræktaraðstaða. Bæði hlaðborðsveitingarstaður og grillveitingastaður er á hótelinu. Hótelið býður upp á kvöldskemmtanir t.a.m. lifandi tónlist og karíókí. 

 

Ath. Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna.