NAU Sao Rafael Atlantico
Hótellýsing

NAU Sao Rafael Atlantico er fallegt hótel staðsett alveg við ströndina 

Hótelið er með beinan aðgang að Sao Rafael ströndinni. Frá hótelinu er um 10 mínútna akstur inn í gamla bæinn í Albufeira.

Hótelið er innréttað í nútímalegum og hlýlegum stíl og herbergin eru rúmgóð með góðum svölum. Öll herbergin eru búin loftkælingu, síma, sjónvarpi, öryggishólfi og. mini-bar. Að auki er Nespresso kaffivél á öllum herbergjum. Á baðherbergi er hárþurrka. Hámarksfjöldi í herbergi eru tveir fullorðnir og eitt barn. 

Á hótelinu er fallegur og stór sundlaugargarður með þremur sundlaugum, ein þeirra ætluð börnum. Þá eru þar þrír veitingastaðir, hlaðborðsveitingastaður, „A la carte“ veitingastaður og Sushi staður. Hér eru einnig tveir barir, þar af einn við sundlaugina. Stór og glæsileg heilsulind er á hótelinu sem og góð líkamsræktaraðstaða. Þá eru tvær innisundlaugar á staðnum. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaklega fallegt hótel í rólegu umhverfi