Sheraton Zagreb
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel staðsett í hjarta Zagreb í aðeins 500 metra fjarlægð aðal lestarstöðinni og torginu í miðbænum. 

Hótelið er fallegt og stílhreint, innréttað í klassískum stíl. 

Herbergin eru hlýleg, öll búin loftkælingu, mini-bar, setusvæði með skrifborði, öryggishólfi (gegn gjaldi), kaffi- og te aðstöðu, síma og sjónvarpi. Á baðherbergi er ýmist baðkar eða sturta, stækkunarspegill, hárblásari og inniskór. 

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, alþjóðlegur „A la carte“ veitingastaður, bar og kaffihús. Gestir geta upplifað sýnishorn af króatískri og alþjóðlegri matargerð á veitingastöðum hótelsins eða notið léttra veitinga og drykkja á Café Imperial eða Piano Bar. 

Þá er hér einnig ókeypis aðgangur að upphitaðri innisundlaug og líkamsræktaraðstöðu heilsulindarinnar. Aðrar meðferðir í heilsulindinni eru gegn gjaldi. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.