Sol Don Marco
Hótellýsing

Hótel Sol Don Marco er partur af Sol Torremolinos keðjunni sem hefur auk þess Sol Don Pedro og Sol Don Pablo á sínum snærum. Gestir sem bóka sig á einhverjum af þessum hótelum geta nýtt sér þjónustu þeirra allra og þannig hámarkað upplifun sína í fríinu. Þessi þrjú hótel mynda eina stóra heild og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um fjölskyldur eða pör er að ræða.

Herbergin eru fallega og nútímalega innréttuð, björt og rúmgóð. Í þeim öllum er loftkæling og sjónvarp. Hárþurrka er á baðherbergjum og baðkar með sturtu. Svalir eða verönd með stólum og borði fylgja auk þessa öllum íbúðum. 

Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og einnig er hægt að næra líkama og sál í heilsulind hótelsins. Auk þess má finna spilaherbergi og borðtennisborð.

Mikla afþreyingu má finna á öllum þessum hótelum. Allt frá íþróttum og ýmsum vatnaleikjum til danstíma svo fátt eitt sé nefnt. Á kvöldin eru ýmsar skemmtanir í boði, lifandi tónlist og sýningar af mörgu tagi.

Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu þar sem mikið úrval af þjóðlegum og alþjóðlegum réttum eru framreiddir. Eldað er fyrir opnum tjöldum og geta gestir einnig notið matarins utandyra á fallegri verönd. Regluleg þemakvöld eru auk þess í boði. Einnig er góður snakkbar á hótelinu, Jerez Bar, sem býður upp á margvíslega drykki og snarl. Hér er einnig hægt að njóta bæði innandyra sem utan. Gestir geta svo nýtt aðra veitingastaði og bari sem finna má á hinum hótelunum.

Samtals níu sundlaugar eru á öllum þessum hótelum, þar af ein upphituð innilaug sem tengist heilsulindinni og tvær barnalaugar ásamt nuddpottum. Sólbekkir og sólhlífar standa hótelgestum til boða og hægt er að velja úr mörgum góðum stöðum til að sóla sig á eða dýfa sér ofan í einhverja af þeim fjölmörgu sundlaugum sem finna má.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Mikið líf og fjör og frábær aðstaða!