Hotel Ocean House Costa del Sol
Hótellýsing

Mjög vel staðsett hótel við La Carihuela ströndina. Miðbær Torremolinos er steinsnar frá hótelinu og snekkjubátahöfnin Puerto Marina er í göngufæri frá hótelinu.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn og hægt er til dæmis að leigja sér reiðhjól eða bílaleigubíl.

Svíturnar eru stórar og rúmgóðar og hægt er að velja að hafa þær sem eitt stórt rými eða tvö aðskilin rými þar sem útdraganleg hurð er í miðju rýmisins. Í svítunum má finna tvö sjónvörp, setusvæði og svefnsófa. Ýmist baðkar eða sturta er inni á baðherbergjum. Svalir eða verönd fylgja að auki öllum svítum.

Hlaðborðsveitingastað er að finna á hótelinu sem sérhæfir sig í matseld kennda við Miðjarðarhafið auk þess sem hægt er að fá mexíkanska rétti á sundlaugarbarnum.

Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og boðið er upp á ýmsa æfingatíma t.d. jógatíma. 

Garðurinn er stór og eru samtals fimm sundlaugar á hótelinu, sem allar snúa í átt að hafinu. Sólbekkir eru til afnota og handklæðaþjónusta er í hótelgarðinum. Beint aðgengi er frá garðinum á ströndina. Á þaki hótelsins er sundlaug og sólbaðsaðstaða, þar sem boðið er upp á frí handklæði, sólarvörn, tímarit og snarl. Athugið, þetta svæði er einungis ætlað 16 ára og eldri og er háð framboði hverju sinni.

Á kvöldin er skemmtidagskrá og spilar plötusnúður tónlist við sundlaugarbarinn. Auk þess er stundum lifandi tónlistarflutningur.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma. 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Gott hótel sem hentar hvort sem er pörum eða fjölskyldum!