Sol Principe
Hótellýsing

Hótel Sol Principe er frábærlega vel staðsett hótel, alveg við Playamar ströndina. Þetta er flott hótel sem býður upp á mikla afþreyingu fyrir alla aldurshópa og hér ætti engum að leiðast. Góða aðstöðu til geymslu reiðhjóla má einnig finna á hótelinu.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn.

Herbergin eru hlýleg og nýtískulega innréttuð. Í þeim öllum er sjónvarp, ísskápur og baðherbergi með baðkari eða sturtu. Svalir eða verönd fylgja öllum herbergjum. Hægt er að bóka fjölskyldusvítur sem eru mjög rúmgóðar og hafa auk þess loftkælingu, tvö sjónvörp og setustofu með svefnsófa. Fjölskyldusvíturnar eru allar með sundlaugarsýn.

Ýmsa afþreyingu má finna á hótelinu, t.d. líkamsræktaraðstöðu sem opin er allan sólarhringinn. Sérstakt leiksvæði er einnig fyrir börn og barnaklúbbur starfræktur. Hægt er að taka þátt í spinning tímum, sundlaugarleikfimi og fleira skemmtilegu á daginn. Margvíslegar kvöldskemmtanir eru í boði öll kvöld og býður dansgólfið dansþystra.

Tveir hlaðborðsveitingastaðir eru á hótelinu, svo hægt er að velja úr aragrúa margvíslegra rétta. Einnig má finna snakkbar á hótelinu sem opin er frá miðjum degi og fram á kvöld þar sem hægt er að fá sér smárétti og ýmsa drykki.

Hótelgarðurinn er stór og flottur með um 1500 m2 glæsilegri sundlaug. Auk þess er sundlaug sem snýr beint út að ströndinni og hafinu. Einnig má finna sundlaug sem er upphituð á vissum árstíma. Sólbekkir og sólhlífar standa hótelgestum til boða.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Flott og líflegt hótel sem hentar fjölskyldum mjög vel!