Sol Timor
Hótellýsing

Hótel Sol Timor Apartamentos er frábærlega vel staðsett hótel alveg við göngugötu strandlengjunnar í Torremolinos. Beint aðgengi er á La Carihuela ströndina. Veitingastaðir og barir eru í grennd við hótelið og er Puerto Marina svæðið einnig í göngufæri.

Íbúðirnar eru látlausar og snyrtilegar. Í boði er að bóka stúdíó íbúðir eða íbúðir með einu svefnherbergi. Í þeim öllum má finna sjónvarp, eldunaraðstöðu, kaffivél, ketil og baðherbergi með sturtu. Svalir eða verönd fylgja auk þess öllum íbúðum. Einnig er hægt að fá barnarúm. Íbúðirnar með einu svefnherbergi eru mjög rúmgóðar og hafa auk þess setustofu með svefnsófa. Gegn aukagjaldi býðst svo að bóka íbúðir með sjávarsýn.

Ýmsa þjónustu er að finna á hótelinu, t.d. hárgreiðslustofu, sjálfsala og litla verslun.

Krakkaklúbbur er starfræktur, leikjaherbergi má finna á hótelinu og er margvísleg skemmtun í boði, bæði á daginn og kvöldin fyrir alla aldurshópa. Að auki er tennisvöllur í hótelgarðinum.

Hlaðborðsveitingastaður er á hótelinu sem framreiðir fjölbreytta og margvíslega rétti. Sundlaugarbarinn býður upp á úrval svalandi drykkja, ís, pizzur, hamborgara, salöt og fleira. Strandbarinn sérhæfir sig svo í heilsusamlegum réttum í anda Miðjarðarhafsins.

Garðurinn er gróðursæll með voldugum pálmatrjám. Stór sundlaug, með útsýni yfir hafið er í fallegum hótelgarðinum þar sem finna má sólbekki og sólstóla til afnota fyrir hótelgesti. Ef sólin hefur gælt of lengi við mann er gott að komast í skjól á sundlaugarbarnum og kæla sig niður með svalandi drykk við hönd.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Frábær staðsetning, fjör fyrir alla fjölskylduna!