Star hotel Majestic er gott 4 stjörnu hótel vel staðsett í miðborginni í Torino. Hótelið er staðsett beint a´móti aðal-lestarstöðinni Porta Nuova. Hótelið er í göngufæri við Piazza Castello og Konunglegu höllina. Þá tekur það aðeins um 5 mínútur að fara með sporvagninum að aðal verslunargötu borgarinnar Via Garibaldi.
Á hótelinu er veitingastaður Le Regine by Eataly sem býður uppá ljúfengan ítalskan mat ásamt alþjóðlegum réttum. Þá er á hóteinu notalegur bar þar sem hægt er að kaupa létta drykki og snarl.
Herbergin eru innréttuð í klassískum og virðulegum stíl og eru vel búin helstu þægindum.
Gott hótel í miðborg Torino.