Aparthotel Stella Maris
Hótellýsing

Stella Maris er mjög vel staðsett íbúðarhótel í Fuengirola en bærinn skartar breiðri strandlengju. Þetta er líflegur og skemmtilegur strandbær með mikið úrval af veitinga- og skemmtistöðum. Um 5 mín gangur er frá hótelinu í miðbæinn og því stutt í alla þjónustu.

Hér er móttakan opin allan sólarhringinn.

Íbúðirnar eru einfaldar og lausar við allan íburð. Allar eru þær búnar helstu þægindum, svo sem loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi), eldunaraðstöðu með ísskáp, keramik helluborði, örbylgjuofni, brauðrist, kaffivél og katli. Hárþurrka er á baðherberginu. Svalir eða verönd með sjávarsýn fylgja auk þess öllum íbúðum.  Skipt er á rúmum fimm sinnum í viku og handklæðum er skipt út á þriggja daga fresti. Dagleg þrif eru á mánudögum til laugardaga.

Gestir hótelsins hafa aðgang að lítilli sundlaug í garðinum þar sem sólbekkir, sólstólar og sólhlífar eru í boði að kostnaðarlausu. Hér er ekki veitingastaður, en það er kaffitería og bar þar sem hægt er að kaupa sér morgunverð, drykki og snarl. Matvöruverslun er í næsta nágrenni sem og þvottaaðstaða gegn gjaldi.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Mjög vel staðsett íbúðarhótel, góður kostur fyrir þá sem kjósa að vera alveg við strönd!