Stökktu til Tenerife
Hótellýsing

Stökktu til Tenerife - á frábærum kjörum!

Stökktu tilboð er góður kostur fyrir þá sem vilja komast í sólarferð á sem hagkvæmastan máta hverju sinni. Á þessu tilboði bókar viðskiptavinur flug og gistingu með ákveðinni stjörnugjöf. Viðskiptavinir geta lent hvar sem er á svæðum áfangastaðarins og leitast er við að upplýsa um gististað í síðasta lagi degi fyrir brottför, sé það mögulegt. 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega á hótelum og ekki er hægt að óska eftir sérstakri staðsetningu eða hóteli. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að sú gisting sem er úthlutað sé almennt í sölu hjá Heimsferðum.

Vert er að taka fram að farþegar verða að vera undir það búnir að þurfa að skipta um gististað meðan á dvöl stendur.