Sunrise Village
Hótellýsing

Heimili að heiman! 

Góður gistivalkostur sem er staðsettur í bænum Platanias rétt um 12 km frá Chania. Hótelið sjálft er vinalegt og lagt uppúr að fólki líði eins og heima hjá sér. 

Móttakan er opin frá 08:00 til 22:00 alla daga. Hótelið er staðsett 550 metra frá ströndinni og 800 metra frá miðbænum í Platanias. 

35 metra sundlaug er miðsvæðis í garðinum og er hluti af henni afmarkaður sem barnalaug. Sundlaugin er opin alla daga frá 08:00 til 21:00.   Leikvöllur er staðsettur á svæðinu og er hann hannaður fyrir minni börnin eða upp að 12 ára aldri. Þar rétt hjá er veitingastaðurinn Sunrise Village sem býður upp á morgunmat, hádegismat og hlaðborð í kvöldmat. Það er einnig sundlaugarbar þar sem hægt er að fá sér snarl og drykki á meðan verið er að njóta við sundlaugina. 

Herbergin eru innréttuð í notalegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og sjónvarpi, mini kæli og öryggishólfi. Öll herbergi eru með svölum en mismunandi hvort þær snúi að sundlaug, garði eða eru með sjávarsýn. 

Loftkæling er innifalin.

Á  baðherbergi má finna hárþurrku. Hægt er að leigja ísskáp ef óskað er eftir því.

Þrif eru alla daga nema sunnudaga og skipt er á rúmfötum og handklæðum tvisvar sinnum í viku,.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Róleg staðsetning í umhverfi ólífutrjáa!