Tent Torremolinos (Áður Hotel Natali)
Hótellýsing

Hotel Tent Torremolinos hét áður Hotel Natali og er nýuppgert. Þetta er lítið og nýtískulegt hótel sem hentar þeim vel sem vilja vera í hringiðu mannlífsins í Torremolinos. Hótelið er vel staðsett í miðbæ Torrremolinos, verslanir, veitingastaðir og næturlíf er í næsta nágrenni. Bajondillo ströndin er í um 1 kílómetra fjarlægð. 

Herbergin eru látlaus og stílhrein og eru vel búin öllu því helsta. Í þeim er loftkæling, sími, sjónvarp og öryggishólf (gegn gjaldi). Svalir fylgja öllum íbúðum með stól og borði. Baðherbergi eru með baðkari og hárþurrku.

Á hótelinu er þvottaaðstaða gegn gjaldi. Einnig er afdrep til að stunda líkamsrækt fyrir þá sem vilja.

Lítil sundlaug er við hótelið og hægt að fá sólbekki, en aðstaðan er ekki stór.

Á hótelinu er veitingastaður þar sem er framreiddur svokallaður „brunch“ alla daga, sem er sambland af morgun- og hádegismat og er opinn til klukkan 13:00. Athugið að brunchinn fylgir með þegar bókað er herbergi á þessu hóteli. Þá er einnig hótel bar og hægt að spila billiard í opnu rými hótelsins.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Vel staðsett hótel í miðbæ Torremolinos!