Theo Hotel
Hótellýsing

Theo Hotel er 4* hótel í Agia Marina, staðsett á góðum stað aðeins 9 km vestur af Chania. Hótelið stendur í hæð sem er með gott útsýni til sjávar og til eyjunnar Theodorou. Ströndin er í aðeins 150 m göngufæri. 

 

Theo Hotel býður upp á hlýlegt og vinalegt andrúmsloft. Hér er að finna 130 herbergi, öll búin loftkælingu, kæliskáp, katli, sjónvarpi, síma og öryggishólfi og baðherbergi með sturtu eða baðkari. Öll herbergin eru með svölum eða verönd. Íbúðirnar eru búnar litlu eldhúsi að auki. 

 

Hér er að finna hlaðborðveitingastað sem er opinn frá 8:00-23:00 og býður upp á morgunverð, hádegisverð og kvöldmat. Einnig er A la carte matseðill frá klukkan 18:00. Þá er hér einnig sundlaugarbar sem er opinn til 01:00. 

 

Hér er sundlaugargarður og barnalaug en einnig er sundlaug og líkamsræktaraðstaða innanhúss sem hægt er að nýta sér til klukkan 20:00.