Toxo Apartments
Hótellýsing

Toxo Apartments er mjög fallegt og stílhreint íbúðarhótel sem er einn vinsælasti íbúðar gistivalkostur Heimsferða á Krít! Hótelið þykir rólegt og fjölskylduvænt, er með rúmgóðar íbúðir og lítinn og notalegan sundlaugargarð sem hentar vel fyrir barnafólk. Hótelið er staðsett í rólegu og huggulegu umhverfi á mörkum strandbæjanna Agia Marina og Platanias þar sem stutt er niður að fallegri ströndinni og er í rétt um 1 km fjarlægð frá miðkjarna strandbæjanna þar sem er að finna mikið af góðum veitingastöðum, kaffihúsum, börum, verslunum og afþreyingu. 

Þetta er fallegt og mjög vel við haldið íbúðahótel með einungis 36 íbúðum. Heimsferðir bjóða hér farþegum sínum ýmist stúdíó íbúðir eða íbúðir með 1-2 svefnherbergjum en þetta hótel er tilvalið fyrir fjölskyldur 4+ þar sem hér er hægt að bóka allt að 6 manns í gistingu. Hótelið er einnig með íbúðir með aðgengi fyrir hjólastóla. Íbúðirnar eru vel búnar, allar með eldunaraðstöðu og áhöldum, m.a. kæliskáp og kaffivél sem og loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og verönd eða svölum með útsýni yfir garðinn eða sjóinn. Þá eru baðherbergin með baðkari eða sturtu og hárþurrku. 

Í huggulegum garðinum eru tvær sundlaugar og barnalaug, sundlaugarbar sem býður upp á drykki, léttar máltíðir og snarl, veitingastaður, barnaleiksvæði og einnig er lítil líkamsræktaraðsta og heitur pottur. Toxo er tilvalið fyrir barnafólk og stærri fjölskyldur sem vilja vera í rólegu og notalegu umhverfi. Það er stutt niður að fallegri strandlengjunni og ekki langt að sækja í ýmsa þjónustu og afþreyingu. Einnig er stutt niður á aðalgötuna þaðan sem strætisvagnar fara inn í miðbæ Chania en það eru um 10 km þangað.

Athugið einnig að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.