Vel staðsett hótel í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Santa Catarina verslunargötunni. Héðan er einnig stutt í neðanjarðarlest.
Hótelið var allt gert upp árið 2015 og er mjög huggulegt.
Á þessu hóteli eru 292 herbergi, innréttuð á nútímalegan hátt. Öll herbergin eru búin síma, loftkælingu, sjónvarpi, mini-bar, öryggishólfi (gegn gjaldi) og hitaketill (gegn gjaldi). Á baðherbergi er ýmist sturta eða baðkar, stækkunarspegill og hárþurrka.
Hér eru tveir veitingastaðir, þar af er einn hlaðborðsveitingastaður. Hinn veitingastaðurinn er nýr og býður upp á heimagerðar pítsur af matseðli. Þá eru hér einnig tveir barir.
Á hótelinu er afar góð heilsulind þar sem má fara í gufu, tyrkneskt böð og nuddpotta. Þá er hér innilaug, en skylda er að vera með sundhettu í lauginni. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða og hægt er að bóka ýmsar nuddmeðferðir gegn auka gjaldi.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.