Vila Recife
Hótellýsing

Vila Recife er lítið og notalegt hótel.

Hótelið er mjög einfalt en vel staðsett, örstutt frá gamla miðbænum í Albufeira. Fjöldi veitingahúsa og verslana er í næsta nágrenni. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að ganga að torginu í gamla bænum þar sem ávallt er líf og fjör. 

Hótelið er ekki stórt en þar eru um 92 herbergi. Herbergin rúma að hámarki þrjá gesti en þau eru ágætlega búin með loftkælingu, sjónvarpi, litlum ísskáp, svölum og öryggishólfi. 

Góð sundlaug með sólbekkjum er í hótelgarðinum. Einnig er lítill veitingastaður og bar. Góður kostur fyrir þá sem sem kjósa að vera nálægt gamla bænum.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.