Villa Adeje Beach
Hótellýsing

Hér er um að ræða einfaldan, hagkvæman og vinsælan gistivalkost á Costa Adeje svæðinu. Hér er boðið upp á allt innifalið þjónustu á góðu verði. 

Hótelið er á átta hæðum, einfalt og komið til ára sinna, en afar vel staðsett. Í nánasta umhverfi eru veitingastaðir, barir og verslanir og stuttur gangur er á ströndina. 

Hér eru um 120 íbúðir, rúmgóðar og innréttaðar á einfaldan máta með pastellitum og viðarhúsgögnum. Allar eru með litlum eldhúskrók en þar er helluborð, ísskápur og helsta leirtau. Íbúðirnar eru einnig búnar loftkælingu (gegn tryggingargjaldi), sjónvarpi (gegn tryggingu á fjarstýringu), síma og öryggishólfi (gegn gjaldi). Á baðherbergi er sturta og hárþurrka. Allar eru með svölum eða verönd. Hér er gert ráð fyrir því að gestir hótelsins komi sjálf með sápur og slíkt fyrir sína dvöl. 

Hér er hámark tveir fullorðnir og eitt barn í stúdíó íbúð og hámark þrír fullorðnir og eitt barn  í íbúð með einu svefnherbergi.

Á hótelinu er bar, hlaðborðsveitingastaður, lítið diskótek, lítil líkamsræktaraðstaða, gufubað og heitur pottur, leikherbergi og skvassvöllur. Þá er hér einnig þvottaaðstaða fyrir þá sem vilja nýta sér hana gegn auka gjaldi. 

Á sólarveröndinni er að finna tvær sundlaugar, sólbekki og sólhlífar og sundlaugarbar. Önnur sundlaugin er upphituð allt árið.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu gegn gjaldi, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

ATH. Íbúðirnar á jarðhæð eru með litlu sem engu útsýni og stúdíó íbúðirnar snúa allar í norður og þar gætir lítillar sólar.