Villaggio Mare Suites
Hótellýsing

Villaggio Mare Suites er nýr gististaður aðeins fyrir fullorðna (16+) sem býður upp á nútímalega þjónustu og vinalegt andrúmsloft. 

16 glænýjar íbúðir og vinnustofur, hannaðar með nútímalegum efnum og með áherslu á smáatriði, staðsettar á friðsælu svæði 3.5 hektara samtals, í Kalamaki, aðeins 6 km. vestur af Chania. 

Villaggio Mare Suites býður upp á móttökuþjónustu, útisundlaug með heitum potti, ókeypis einkabílastæði og garð sem er staðsettur 600 metra frá Blue Flag-sandströndinni og 350 metra frá fallegu höfninni í Galatas.

Íbúðirnar og stúdíóin eru vel innréttuð, með nægu rými og aðstöðu til að njóta svefns, eldhúsið er fullbúið og svalir rúmgóðar.  Með áherslu á einstaklingsbundnar þarfir hvers gests eru þær allar með ókeypis Wi-Fi Internet, loftkælingu, snjallsjónvarpi með gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi, skrifborði, Nespresso-kaffivél, ísskáp, ketil og sérbaðherbergi með ókeypis snyrtivörum og hárþurrku.

Þrjú þorp (Galatas, Daratso og Stalos), með verslunum, veitingastöðum og börum, eru innan við 2 km, frá gististaðnum  en nálægt er strætóskýli þar sem hægtr er að nálgast almenningssamgöngur.

Vinsamlegast takið eftir að það eru svo þröngar götur við hótelið að því miður komast rúturnar ekki þangað og þurfa farþegar því að fara úr rútunni við aðalgötuna og fara fótgangandi með farangurinn upp að hótelinu. 

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Vinsamlegast takið eftir að það eru svo þröngar götur við hótelið að því miður komast stærri rúturnar ekki þangað og því fara farþegar ekki í rútum með fararstjórum en eru keyrðir með leigubíl eða minni rútum svo ekki þurfi að ganga langa vegalengd með töskur.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.