Westin Zagreb
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel, sem er hluti af Marriott keðjunni sem margir þekkja. 

Hótelið er staðsett miðsvæðis í hjarta Zagreb, við hliðina á Mimara safninu og óperuhúsinu. Héðan er mjög stutt að ganga á aðaltorgið. 

Herbergin eru fallega innréttuð og búin öllum helstu þægindum. Hér er loftkæling, öryggishólf, sjónvarp, mini-bar (gegn gjaldi) og kaffi- og te aðstaða. Á baðherbergi eru snyrtivörur, sloppur, inniskór og hárþurrka. 

Á hótelinu er veitingastaður, bar, líkamsræktaraðstaða með hóptímum og lyftingarsal og heilsulind með sundlaug.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.