Zeus Village
Hótellýsing

Zeus Village er glæsilegt og fallegt hótel í krítverskum stíl einungis fyrir 18 ára og eldri. Hótelið býður upp á góða þjónustu og leggur mikið upp úr gæðum og einstakri upplifum í notalegu og fallegu umhverfi. 

Um 600 metrar eru á strendurnar í Ag. Apostoloi og til Chania eru einungis um 4 km.

Á hótelinu er 36 rúmgóðar íbúðir, stúdíóíbúðir og svítur sem eru allar með svölum eða verönd sem ýmist snúa út í garð eða í átt til sjávar. Íbúðirnar eru mjög snyrtilegar og huggulegar og eru búnar loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi) og kæliskáp. Á baðherbergi er hárþurrka. 

Hér er að finna fallegan sundlaugargarð með einni stórri sundlaug og annarri minni, sundlaugabar og veitingastað sem býður upp á gríska og krítverska matargerð framreidda á nýstárlegan hátt. Einnig er að finna aðstöðu þar sem boðið er upp á nuddmeðferðir, ilmmeðferðir, handsnyrtingu og fótsnyrtingu. Í nágrenninu er að finna góða veitingastaði og kaffihús og nokkrar verslanir. 

 

Superior íbúð með 1 herbergi með svölum eða verönd 

Allar íbúðir eru  með svefnherbergi með hjónarúmi og opinni stofu með þægilegum sófa sem rúmar annan gest. Á sama svæði er að finna borðstofu og lítið eldhús með litlum ísskáp, leirtaui, kaffivél og katli sem gerir fólki kleyft að undirbúa litlar máltíðir og snarl á daginn. Útiveröndin býður upp á ótrúlegt útsýni yfir sundlaug hótelsins og nuddpottinn.

  • 1 herbergi
  •  max 3 fullorðnir
  • Stærð 34m²
  • Sundlaugarsýn eða garðsýn

 

Junior Svíta - 2 herbergja

Hin rúmgóða Zeus Village Resort svíta er með tvö svefnherbergi með queen-size rúmum og opinni stofu með tveimur sófum. Á sama svæði er að finna borðstofu og lítið eldhús með leirtaui, kaffivél og katli sem gerir fólki kleyft að undirbúa litlar máltíðir og snarl á daginn. Útiveröndin býður upp á ótrúlegt útsýni yfir sundlaug hótelsins og nuddpottinn.. 

  • 2 herbergi
  • Max 4 fullorðnir  
  • Stærð 48m²
  • Sundlaugarsýn 

 

Superior íbúð með heitum potti 

Superior íbúðin er með jacuzzi-potti og býður upp á bjart og rúmgott opið svefnherbergi með king-size rúmi ásamt rúmgóðri stofu og borðkrók. Á sama svæði er að finna lítið eldhús með borðbúnaði, kaffivél og katli sem gerir fólki kleyft að undirbúa litlar máltíðir og snarl á daginn.

  • 1 herbergi
  • Max 2 fullorðnir  
  • Stærð 35m²
  • Sundlaugarsýn og bæjarsýn 

 

Lúxus svíta með lítilli einkasundlaug á þakinu

Lúxussvítan er á tveimur hæðum.  Á fyrstu hæðinni eru tvö svefnherbergi með king-size rúmum og rúmgott baðherbergi með baðkari. Á annarri hæð er aðskilin, rúmgóð stofa og borðstofa, baðherbergi með sturtu og lítið eldhús með borðbúnaði, kaffivél og katli sem gerir fólki kleyft að undirbúa litlar máltíðir og snarl yfir daginn. Efst á byggingunni bjóða einkasundlaugin og veröndin upp á einstakt útsýni yfir Chania-flóa og bjóða gestum í algjöra sælustund. Útiborðkrókurinn og sólstólarnir fullkomna myndina af útisvæðinu.

  • 2 herbergi
  • Max 4 fullorðnir 
  • Stærð 53m²
  • Sundlaugarsýn, sjávarsýn & bæjarsýn

 

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu farþega sinna á hótelinu.

Á þessu hóteli þarf að greiða gistináttaskatt (1.50 eur á mann á nótt) en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Þetta er mjög góður gistivalkostur í huggulegu umhverfi.