Zonar Zagreb
Hótellýsing

Hér er um að ræða gott hótel, staðsett við hlið Dom Sportova leikvanginum, í um 20 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum. Um 800 metra frá hótelinu er sporvagnastöð. 

Herbergin eru fallega innréttuð á minímalískan hátt, búin öllum helstu þægindum. Monochrome herbergin eru grá að lit. Hér er sjónvarp, kaffi- og te aðstaða, loftkæling, öryggishólf, sími og mini-bar (gegn gjaldi).  Á baðherbergi er ýmist sturta eða baðkar og hárþurrka, stækkunarspegill og snyrtivörur.

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annar þeirra er hlaðborðsveitingastaður og hinn er steikhús. Þá er hér bar, líkamsræktaraðstaða og lyfta utan á hótelinu til að sjá beint yfir borgina. Hótelið býður upp á sundlaug á þakinu ásamt sundlaugarbar og dásamlegu útsýni yfir borgina.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Tilvalið hótel fyrir íþróttafólk