Sérferðir - Göngu- og dekurferð í Toskana - Júní. UPPSELD!
Göngu- og dekurferð í Toskana - Júní. UPPSELD!
Ekki hægt að bóka
Því miður er engin gisting í boði fyrir umbeðinn fjölda farþega
Innifalið í verði:

 

Flug og flugvallaskattar, 1 taska allt að 20 kg, gisting á 3* hóteli í 7 nætur með morgunverði, tveir kvöldverðir, pastagerðarnámskeið, ferðir sem taldar eru upp í leiðarlýsingu, rútur, akstur, staðarleiðsögn og íslensk fararstjórn. 

Ekki innifalið í verði:

 

Nuddmeðferðir, aðgangur í Gljúfragarðinn (Canyon Park) og ferðir þangað, þjórfé eins og við á hverju sinni.

Ferðalýsing

 

ÞESSI FERÐ ER UPPSELD.  NÝ FERÐ KOMIN Í SÖLU 4.-11 SEPTEMBER.

Flogið er til Verona og ekið þaðan til bæjarins Bagni di Lucca þar sem dvalið er allan tímann. Gist er á hótel La Corona sem er fallegt 3* hótel. Farnar eru mislangar göngur á meðan á dvölinni stendur. Góður tími inn á milli gangna til að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða eða slaka á og dekra við sig.

 

Bagni di Lucca er einstaklega fallegur lítill bær inn til fjalla í norðurhluta Toskana og er eiginlega samnefnari yfir 3 bæi sem nota það sem eins konar regnhlífarnafn. Nafnið þýðir í raun Böðin í Lucca sem er mjög lýsandi og ber bærinn því nafn með rentu. 

 

Bagni di Lucca er í dag þekkt sem miðstöð fyrir útivist með gönguferðum, hjólreiðum, klifri, skíðabrekkum, vatnasporti og ævintýramennsku. Vinsælt er að fara í Gljúfragarðinn (Canyon Park) og einnig koma margir ár hvert til Abetone í Appenína fjöllunum í skíða- eða gönguferðir. 

 

Náttúruunnendur hafa úr nógu að velja en einnig er hægt að fara í hæglætisfrí því hér er vin fyrir ferðamenn sem vilja láta líða úr sér í friðsælu og fögru umhverfi, burtu frá mannfjöldanum. Það er samt stutt til Flórens, Siena, Pisa og Lucca sem er bara í 27 km fjarlægð.

Bagni di Lucca var einn vinsælasti áfangastaður ríka og fræga fólksins á 18. og 19. öld. Heilsulindirnar, fyrsta spilavítið í Evrópu ásamt mikilli náttúrufegurð var helsta aðdráttaraflið. Vinsældir staðarins urðu líka til þess að hér risu villur af betri og stærri gerðinni, sem enn prýða umhverfið. 

Svæðið er á þekktri gönguleið pílagríma (Via Francigena) sem áttu erindi til Rómar til að hljóta blessun og fyrirgefningu. Þessi sögulega leið lá yfir hina frægu Ponte Maddalena brú sem gengur venjulega undir nafninu Djöflabrúin.  Brúin er yfir 1000 ára gömul og er ein elsta brú Ítalíu og setur sannarlega svip á umhverfið kringum ána Serchio. 

Fyrir þá sem vilja dekur og nudd eftir gönguferðir er hægt að panta nudd hjá fagfólki á hótelinu. Frekari upplýsingar um hótelið: https://www.lacoronabdl.com/