Heimsferðir
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík Sími 595 1000
Viltu senda starfsfólki Heimsferða fyrirspurn tengda fyrirtækinu eða ferðum á vegum þess?
Vinsamlega sendu almenna fyrirspurn á sala@heimsferdir.is
Ef þú vilt sækja um auglýsinga- og/eða annan styrk, sendu þá á markadsmal@heimsferdir.is
Hópaferðir
Á hverju ári ferðast tugþúsundir Íslendinga með Heimsferðum í borgarferðir, sólarferðir, sérferðir og aðrar sértækari ferðir. Oft er um að ræða starfsmannahópa í árshátíðarferð, félagasamtök eða ferðaklúbba. Það segir sína sögu að sömu hóparnir ferðast með Heimsferðum aftur og aftur – enda kappkostum við að veita góða þjónustu og tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig.
Sendu okkur fyrirspurn og ósk um tilboð vegna hópferðar á netfang okkar hopar@heimsferdir.is
Fyrirspurn þín sendist beint á hópadeild sem verður í sambandi við þig innan 3 virka daga.
Hópar samanstanda af 20 farþegum eða fleiri, ef um smærri hóp er að ræða vinsamlegast sendið póst á sala@heimsferdir.is
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir hópatilboð:
Nafn tengiliðs:
Nafn hóps/fyrirtækis:
Heimilsfang:
Netfang:
Símanúmer:
Brottför:
Dvalarlengd:
Áfangastaður:
Stærð hóps:
Verðviðmið á mann:
Senda ábendingu
Ef það er eitthvað sem þú ert ekki ánægð/ur með á meðan dvöl þinni í fríinu stendur, þá er mikilvægt að þú tilkynnir fararstjórum okkar sem eru fulltrúar ferðaskrifstofunnar það strax á staðnum, þannig að við fáum strax tækifæri til að leysa málið. Ef þú telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu eða annað er varðar gististaðinn skal gera starfsfólki gististaðarins viðvart, og einnig fararstjóra eftir því sem við á. Til þess að þú fáir sem mest úr úr fríinu er ávallt best að leysa málið á meðan dvöl stendur, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Ef þú telur að málið hafi ekki verið leyst á meðan dvöl stóð þá skal ábending þess efnis berast ferðaskrifstofu skriflega eins fljótt og við verður komið og í síðasta lagi innan mánaðar frá því að ferðinni lauk, að öðrum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. **Vinsamlega sendu okkur tölvupóst á sala@heimsferdir.is með eftirfarandi upplýsingum: Fullt nafn, Bókunarnúmer, Símanúmer, Ábendingu.
Öllum ábendingum er svarað en athugaðu að það getur tekið allt að 8 vikur, en það fer m.a. eftir umfangi ábendingar, hvort rekja þurfi málið og afla gagna vegna málsins.